SÍÐA Í VINNSLU :: SKOÐIÐ MITT SVÆÐI :: SESAR A: "Of gott..."

ÍSLENSKA :: ENGLISH :: CASTELLANO

Hin langþráða þriðja plata "afa íslensks rapps", komin í búðir og á http://www.smekkleysa.net/album/544

2001 gaf hann út fyrstu rappplötuna eingöngu á íslensku, "Stormurinn á eftir logninu". Árið eftir kom svo "Gerðuþaðsjálfur" og síðan fyrsta rappsafnplatan eingöngu á íslensku "Rímnamín", sem Edda miðlun & útgáfa gaf út. Þetta frumkvöðlastarf Sesars A markaði upphafið að sprengingu í íslensku rappi og hann lét það sér ekki nægja heldur vann hann tónlist með ekki ómerkilegri söngvurum heldur en Diddú og Skafta Ólafs.

Sesar A hefur dvalist erlendis síðustu ár og lokið kvikmyndaleikstjóra- og kokkanámi í Barcelona. Þar hefur hann unnið tónlist og spilað á ótal tónleikum með IFS sveitinni sinni (www.ifscrew.com) í höfuðborg Katalóníu. Nýlega kom út fyrsta platan IFS, “Worldwide”, sem hann tók upp og útsetti. Á henni kom fram allir 9 meðlimirnir sveitarinnar, sem eru frá 8 löndum og rappa eða syngja á allt að 10 tungum. Á “Of gott...” eru þrjú lög með IFS með tónlist eftir Gísla Galdur, Lúlla (úr XXX Rottweiler) og Sesari A sem einnig stjórnaði upptökum og útsetti.

Í laginu “Hosur grænar” skipta Sesar A og kúbanski IFS meðlimurinn Mel Seme á milli sín viðlaginu auk þess sem japanski meðlimur sveitarinnar Shinya leggur til krafta sína. Úr verður einstök blanda tungumála og stíla sem á sér ekki samburð hvað frumleika og framúrstefnu varðar. Enn svakalegra er lagið “Worldwide” þar sem allir meðlimir IFS, á sjö tungum, koma fram og úr verður áður vægast sagt ótrúleg blanda stíla og tungumála.

Á “Of gott” eru nokkur lög sem unnin eru með afrókúbanska bandinu “La mécanica popular” með IFS meðliminn Mel Seme í fararbroddi. Úr verður magnaður bræðingur og íslenskt rapp er sett í aðra vídd.

Meðal annarra gesta á plötunni er Blazroca sem kemur fram í laginu “Nema hvað” sem ásamt fleiri lögum eru í fersku “vesturstrandar-fari” (“westcoast-groove”).
En það er bara einn af ótal stílum sem birtast á þessari tímamótaplötu sem á eftir að marka ný spór í íslenskri tónlistarsögu

info@sesar-a.com